Frístundaleiðbeinandi
Frístundaleiðbeinandi óskast til starfa í Kátakoti sem fyrst. Um er að ræða 37,25% starf frá 13:10 - 16:15 í Kátakoti.
Helstu verkefni og ábyrgð
•Sinna uppeldi og menntun samkvæmt starfslýsingu og aðstoða nemendur við athafnir daglegs lífs.
•Styðja við og styrkja jákvæða hegðun nemenda og sjálfstæði.
•Efla félagsfærni og jákvæða sjálfsmynd nemenda.
•Sjá til þess umhverfi sé öruggt, uppbyggilegt, styðji við þroska og virka þátttöku nemenda.
Menntunar og hæfniskröfur
•Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
•Stundvísi, frumkvæði og metnaður í starfi.
•Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
•Góð íslenskukunnátta (B1 í evrópska tungumálarammanum).
•Hreint sakavottorð (þarf að skila með umsókn).
Laun eru greidd samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 20.september 2026
Umsóknum skal skilað skriflega til skólastjóra á þar til gerðu umsóknareyðublaði sem er á heimasíðu skólans https://gs.hornafjordur.is/media/gomul-gogn/starfsumsokn,-eydublad.pdf
Frekari upplýsingar gefur Þórdís Þórsdóttir skólastjóri í síma 4708440 eða í síma 6986019 og á netfanginu thordisth@hornafjordur.is
Starfsumsókn gildir í 6 mánuði frá auglýsingu.