Skólahjúkrun
Skólahjúkrun
Heilsuvernd skólabarna í Grunnskóla Hornafjarðar er á vegum Heilsugæslu HSU-Höfn í Hornafirði.
Skólahjúkrunarfræðingur er Anna Lind Þórhallsdóttir og viðverutími eftirfarandi:
Mánudagur kl. 9:00 - 11:00 í Hafnarskóla
Miðvikudagur kl. 9:00 –
11:00 í Heppuskóla
Netfang skólahjúkrunarfræðings er: skolahjukrun.hofn@hsu.is
Heilsuvernd skólabarna
Heilsuvernd skólabarna er hluti af heilsugæslunni og
framhald af ung- og smábarnavernd. Markmiðið er að efla heilbrigði nemenda og
stuðla að vellíðan þeirra. Starfsfólk heilsuverndar skólabarna vinnur í náinni
samvinnu við forsjáraðila, skólastjórnendur, kennara og aðra sem koma að
málefnum nemenda með velferð þeirra að leiðarljósi. Farið er með allar
upplýsingar sem trúnaðarmál. Þjónusta heilsuverndar skólabarna er skráð í
rafræna sjúkraskrá heilsugæslunnar.
Helstu áherslur í heilsuvernd skólabarna eru forvarnir, heilbrigðisfræðsla, skimanir og bólusetningar. Unnið er samkvæmt leiðbeiningum Þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu um heilsuvernd grunnskólabarna. Frekari upplýsingar um heilsuvernd skólabarna má finna á heilsuvera.is undir leitarorði „heilsuvernd grunnskólabarna“
Hagnýtar upplýsingar
Veikindi og slys
Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæsluna eða slysadeild skulu forsjáraðilar fara með barninu. Því er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í þá á skólatíma barnsins. Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af heilsuvernd skólabarna.
Langveik börn
Mikilvægt er að skólahjúkrunarfræðingur viti af börnum sem eru með fötlun eða langvinnan og/eða alvarlegan sjúkdóm, s.s. sykursýki, ofnæmi, flogaveiki, blæðingarsjúkdóma eða aðra alvarlega sjúkdóma. Hlutverk skólahjúkrunarfræðingsins er að skapa þessum börnum viðeigandi aðstæður og umönnun í skólanum í samvinnu við foreldra/forsjáraðila og starfsfólk skólans.
Lyfjagjafir - Samkvæmt tilmælum landlæknis um lyfjagjafir í grunnskólum eru sérstakar vinnureglur varðandi lyfjagjafir til nemenda á skólatíma. Mikilvægt er að forsjáraðilar barna sem þurfa að taka lyf á skólatíma hafi samband við skólahjúkrunarfræðing.
Lús og njálgur
Höfuðlús birtist reglulega í skólum landsins og er mikilvægt að foreldrar kembi hár barna sinna reglulega yfir skólaárið. Rétt er að láta skólann vita ef lús finnst í hári barns og skólahjúkrunarfræðingur getur leiðbeint varðandi lúsasmit.
Njálgur er lítill, hvítur hringormur sem er algeng sýking hjá fólki á öllum aldri en algengastur hjá börnum. Sýking kemur oftast upp á stofnunum þar sem mörg börn koma saman t.d. í dagvistun og í skólum og hjá aðstandendum þeirra sem sýkjast. Rétt er að láta skólann vita ef njálgur finnst hjá barni.
Lús og njálgur eru skráningarskyldir sjúkdómar og ber heilbrigðisstarfsfólki að skrá þá ef þeir staðfesta smit eða fá öruggar upplýsingar um smit frá forráðamanni eða skóla. Skólasvið Heilsugæslunnar sér um að senda upplýsingar um fjölda tilfella af lús, njálg og kláðamaur sem greind eru og skráð til Embætti landlæknis.