Íslenska sem annað mál
Hér má finna efni bæði tengt námi og kennslu einstaklinga með íslensku sem annað mál og jafnframt ýmsar upplýsingar fyrir foreldra.
Móðurmálið er málið
Í Grunnskóla Hornafjarðar er nemendahópurinn fjölþjóðlegur með fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn. Í börnunum búa mestu verðmætin því þau hafa tækifæri á að verða jafnvíg bæði á íslensku og móðurmál foreldra sinna. Sveitarfélagið Hornafjörður býr því yfir verðmætum í ört minnkandi heimi með brýna þörf fyrir einstaklinga sem hafa vald á mörgum tungumálum.
Tvítyngi – auður fyrir einstakling og samfélag
Það er ávinningur fyrir sérhvern einstakling að hafa vald á mörgum tungumálum og fjöltyngdir einstaklingar eru afar verðmætir fyrir samfélagið. Þegar fjölskyldur flytjast milli landa er auðveldara fyrir þær að halda tengslum við heimaland sitt ef þær viðhalda móðurmálinu. Börn í slíkum fjölskyldum geta betur skilið og tileinkað sér menningararf foreldranna ef þau kunna móðurmál þeirra.
Sterkt móðurmál er ekki einungis mikilvægt fyrir samskiptin í fjölskyldunni. Það auðveldar líka börnum að tileinka sér íslensku sem annað tungumál. Góður málskilningur stuðlar að sterkri sjálfsmynd og að barnið skynji sig sem mikilvægan hluta af heild.
Túlkaþjónusta
Í Grunnskóla Hornafjarðar er kallað á túlka eftir þörfum enda réttur foreldra að njóta slíkrar þjónustu óski þeir þess.