Mat og eftirlit með gæðum skólastarfs
Í 35. grein grunnskólalaga er kveðið á um að hver skóli skuli meta með kerfisbundnum hætti árangur og gæði skólastarfsins með virkri þátttöku nemenda, starfsmanna og foreldra eftir því sem við á og birta opinberlega upplýsingar um matið í tengslum við skólanámskrá og umbótaáætlun.
Stýrihópur um sjálfsmat sinnir þessu eftirliti og er hann skipaður tveimur fulltrúum starfsmanna og einum fulltrúa stjórnenda.
Markmið mats og eftirlits með gæðum starfs í grunnskólum er að:
a. veita upplýsingar um skólastarf, árangur þess og þróun til fræðsluyfirvalda, starfsfólks skóla, viðtökuskóla, foreldra og nemenda,
b. tryggja að starfsemi skóla sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskrár grunnskóla,
c. auka gæði náms og skólastarfs og stuðla að umbótum,
d. tryggja að réttindi nemenda séu virt og að þeir fái þá þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum.
Matið skiptist síðan í innra mat og ytra mat.