Samstarf
Þannig á hann náið samstarf við leik-, tón-, og framhaldsskólann á staðnum auk ýmissa stofnana í sveitarfélaginu. Samningar hafa verið gerðir um samstarfið m.a. við Menningarmiðstöðina og FAS þar sem ákveðin þjónusta er sótt til þessara stofnana. Einnig hóf grunnskólinn samstarf við Nýsköpunarmiðstöð Íslands í febrúar 2015. Þar sem grunnskólinn og Fab Lab smiðja Hornafjarðar vinna saman með nemendum.
Sérstakur samstarfssamningur hefur verið gerður við ákveðna aðila til að auka fjölbreytni og gæði skólastarfsins. Þessir aðilar eru Framhaldsskólinn í Austur- Skaftafellssýslu, Tónskóli Austur-Skaftafellssýslu og Ungmennafélagið Sindri.
- Samstarfssamningur Grunnskóla Hornafjarðar við Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu.
- Samstarfssamingur Grunnskóla Hornafjarðar við Fab Lab smiðju í Hornafirði.
- Brúum bilið - samstarf Grunnskóla Hornafjarðar og leikskólans Sjónarhóls
- Framkvæmdaráætlun fyrir Brúum bilið 2020-2021
Grunnskóli Hornafjarðar starfar náið með Háskóla Íslands, Menntavísindasviði og veturinn 2019-2020 voru t.d. allir starfsmenn skólans á námskeiði á vegum Menntavísindasviðs. Grunnskóli Hornafjarðar er einn af heimaskólum í kennaranámi bæði hjá HÍ og HA sem þýðir það að ákveðnir kennaranemar kenna alla æfingakennsluna sína við skólann.