Umhverfisdagur

27. apr. 2026

Á síðasta vetrardegi hélt Grunnskóli Hornafjarðar sinn árlega Umhverfisdag, þar sem nemendur og starfsfólk skólans tóku til í nærumhverfi sínu. Nemendum var skipt upp í hópa sem dreifðu sér skipulega um allan bæ og þræddu hóparnir allar helstu göngu og ökurleiðir bæjarins. Margskonar rusl rataði í poka nemenda, en töluvert bar á flugeldarusli, nikótínpúðum og veipum.

Starfsmenn Áhaldahússins sóttu svo allt ruslið á fyrirfram ákveðna staði. Þegar allt var vigtað kom í ljós að nemendur og starfmenn grunnskólans höfðu söfnuðu hvorki meira né minna en 520 kílóum af rusli!

Að lokinni hreinsun hittust allir á bakvið Hafnarskóla þar sem voru grillaðar pylsur, tónlist og danspartý.