Trúðasýning

27. maí 2025

Á miðvikudaginn settum við upp litla trúðasýningu fyrir yngsta stig grunnskólans. En leikararnir voru nemendur í 9. Bekk. Við höfum verið að vinna með trúðatækni síðustu vikur en sú tækni er mikilvægur hluti í þjálfun leikara vegna þess að þessi tækni eykur hæfni leikarans til að takast á við erfiðar og snúnar aðstæður sem krefjast þess að leikarinn höndli áhættu en haldi um leið í leikgleðina. Eitt helsta tákn trúðsins er hið rauða nef og er það talið vera minnsta gríma í heimi. Markmið nemendanna með sýningunni var að gleðja krakkana. Vinna með trúða vekur kátínu og gleði og nemendur gleyma oft stund og stað. Sýningin lukkaðist vel á bæði leikarar og áhorfendur voru ánægjir með afraksturinn.