Treyjudagurinn
Föstudaginn 4. september hvetjum við í Grunnskóla Hornafjarðar nemendur og starfsfólk til að klæðast íþróttatreyju og sýna þannig börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra samstöðu.
Það skiptir ekki máli hvaða liði þú heldur með - á Treyjudeginum erum við öll í sama liði.
Á Íslandi greinist að meðaltali eitt barn í hverjum mánuði með krabbamein. Á Treyjudeginum klæðist fólk uppáhaldstreyjunni sinni til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Áttu ekki íþróttatreyju? Ekkert mál, þá getur þú mætt í bol að eigin vali eða fengið lánað.
Klæðumst treyju föstudaginn 4. september fyrir börn með krabbamein. Við erum öll í sama liði!
