Strandhreinsun ungmenna á Suður- og Austurfjörum haustið 2026 - yfir 7 tonn af rusli!
Umhverfis- og orkustofnun auglýsti í vor eftir umsóknum félagasamtaka eða áhugamannafélaga um styrki til hreinsunar á strandlengju Íslands. Styrkirnir eru veittir á grundvelli aðgerðaráætlunar umhverfis- og auðlindaráðuneytisins í plastmálefnum, Úr viðjum plastsins. Tveir hópar frá Höfn lögðu inn umsókn og hlutu styrki; Legóhópur Grunnskóla Hornafjarðar og fjáröflunarhópur fótboltakrakka hjá Ungmennafélaginu Sindra.
Austurfjörur:
Fótboltakrakkarnir, árgangar 2012 og 2013, fóru sunnudaginn 27. september út á Austurfjörur sem er um 10 km fjara austan við Höfn í Hornafirði, milli Hornafjarðaróss og Stokksness. Foreldrar og aðstoðarfólk fylgdi með, græjuð fjölnotaruslapokum, jeppum og kerrum og einum buggy bíl. Alls taldi hópurinn 37 manns. Á fjörunum var hópnum skipt í tvennt: Helmingurinn fór út að Hornafjarðarós og hinn helmingurinn byrjaði vestan við Langasand. Hugmyndin var að mætast svo á miðri leið. Góð hugmynd - en það var bara svo mikið af rusli í fjörunni að hóparnir náðu ekki saman í lok dags! Fjaran er um 9-10 km á lengd í beinni linu og hópurinn náði að fara alls um 5 km. Alls safnaðist 5,2 tonn af rusli! Mest áberandi var rusl úr sjávarútvegi, eins og netadræsur. En einnig var mikið af alls konar plasti og járnarusli. Ekki er vitað til að áður hafi verið farið í hreinsunarátak í Austurfjörum og augljóst eftir þennan dag að þörf er að fara aftur.





