Stóra upplestrarkeppnin
Miðvikudaginn 4. mars s.l. fór fram bekkjarkeppni Stóru upplestrarkeppninnar. Nemendur í 7.bekk Grunnskóla Hornafjarðar hafa síðustu vikur æft af kappi fyrir keppnina, en 15 nemendur komust áfram í næstu keppni, sem er skólakeppnin og fer sú keppni fram í Nýheimum næstkomandi föstudag, 13. Mars. Lokakeppnin fer svo fram í Hafnarkirkju miðvikudaginn 25. mars, en þar munu einnig keppa nemendur frá Grunnskólanum í Hofgarði og frá Djúpavogi.
Þeir nemendur sem munu keppa í Nýheimum á föstudaginn eru:
| Auður Inga Halldórsdóttir |
| Auður Sveinsdóttir |
| Elvar Þór Arnarsson |
| Garðar Logi Gunnarsson |
| Gerður Lilja Helgadóttir |
| Guðbjörg Dalía Björgvinsdóttir |
| Gunnar Leó Rúnarsson |
| Ingibjörg Matilda Arnórsdóttir |
| Katla Eldey Þorgrímsdóttir |
| Laufey Ósk Ásgeirsdóttir |
| Sólrún Freyja Traustadóttir |
| Steinþór Hauksson |
| Svavar Breki Traustason |
| Telma Atieno Okello |
| Unnur Mist Stefánsdóttir |