Saumaklúbbur í 5. bekk

14. okt. 2026

Í 5. bekk mega nemendur velja sér viðfangsefni þegar skylduverkefnum er lokið. Mjög margir hafa valið sér handavinnu sem varð svo vinsæl að ákveðið var að stofna saumaklúbb í bekknum sem haldinn er í frjálsum tíma á föstudögum.

Það er mikið spjallað og hlegið í klúbbnum og tilhlökkun til næsta föstudags.

Bestu kveðjur Erna og 5. bekkur