Orgelkynning í tónmennt

24. okt. 2024

Í vikunni var Hrafnkell tónmenntakennari með tónmenntatíma uppi í Hafnarkirkju þar sem hann sýndi og kynnti fyrir krökkunum orgelið sem þar er. Farið var í gegnum sögu orgelssins og kom í ljós að orgel er 2300 ára gömul uppfinning. Krakkarnir fengu að heyra hvernig mismunandi stórar pípur hljóma, hvernig petalarnir eru notaðir og að takkarnir til hliðar stjórna röddunum. Kennslustundin endaði á að Hrafnkell spilaði lag úr Pirates of the Caribbean II. 

Leitarniðurstöður