Nýsköpunarkeppni grunnskólana

27. maí 2025

Þrír nemendur úr 6. bekk við Grunnskóla Hornafjarðar voru meðal keppenda í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna (NKG) sem fram fór í síðustu viku. Keppnin, sem dregur að sér hundruð frumlegra hugmynda ár hvert, fékk að þessu sinni um 700 innsendar hugmyndir hvaðanæva af landinu – og á meðal þeirra voru þrír fulltrúar úr Hornafirði.

Nemendurnir dvöldu í tvo daga við Háskóla Íslands þar sem þeir tóku þátt í fjölbreyttum smiðjum, unnu að þróun hugmynda sinna og undirbjuggu kynningu. Lauk keppninni með glæsilegri sýningu á Háskólatorgi laugardaginn 24. maí, þar sem þátttakendur kynntu verkefnin sín fyrir Guðmundi Inga barna og mentamálaráðherra, gestum og dómnefnd.

 Steinþór Hauksson var  með hugmynd sína Lærum íslensku. Hjálpar fólki að nota gömul íslensk upprunaleg orð og nota frumlegri íslensku. og hlaut hann samfélagsbikar NKG fyrir þá hugmynd

Elís Máni Larson var með hugmynd sína Eldgosagirðing sem passar að hraun renni ekki yfir bæi og að fók þurfi ekki að flytja úr bænum sínum.

Þorgils Hlynsson var með hugmynd sína Hettutól sem er heyrnatól í hettupeysu í staðin fyrir reimina og er gott fyrir þá sem týna oft heyrnatólunum sínum.

Við óskum þeim innilega til hamingju með frábæran áranur