Loppumarkaður
Laugardaginn 21. nóvember n.k., frá kl 11-15:00, ætlar Umhverfisnefnd Grunnskóla Hornafjarðar að halda loppumarkað á Hafinu. Tilefni viðburðarins er hvatningarátak Landverndar, Nægjusamur nóvember, en átakið er mótsvar við neysluhyggju og hugmyndinni um að okkur vanti stöðugt eitthvað. Umhverfisnefnd Grunnskóla Hornafjarðar er skipuð nemendum í 5. - 10. Bekk skólans. Ein áhersla nefndarinnar þetta árið hringrásarhagkerfið og er markmið okkar með þessum markaði að stuðla að endurnýtingu með því að gefa vel förnum, notuðum hlutum nýtt líf. Með því að endurnýta og endurselja hluti stuðlum við að minni sóun og umhverfisvænni lífsháttum. Önnur áherslan okkar er hnattrænt réttlæti og rennur allur ágóði af borðaleigunni til góðgerðarstarfs, nefndin valdi að styrkja góðgerðarstarf UNICEF á Gaza þetta árið.
Við hvetjum þá sem vilja losna við hluti heiman frá sér (upplagt að nýta jólahreingerninguna til þess að losa sig við dót sem er ekki í notkun!) að bóka sér borð hjá Þórdísi í síma 7885665 eða á netfanginu thordise@hornafjordur.is. Leiga á borði kostar 5000kr. Leigjendur sjá sjálfir um að taka við greiðslum fyrir söluvarning sinn.
Við vonumst til
að sjá ykkur sem flest á Hafinu laugardaginn 21.nóvember.