Lónsöræfaferð
Þann 31. ágúst héldu nemendur í 10. bekk í árlega ferð í Lónsöræfi ásamt þremur kennurum og Helgu Árnadóttur leiðsögumanni okkar um svæðið. Laufey og Gulli hjá Glacier Journey keyrðu okkur á áfangastað við Illakamb. Gengið var niður að Múlaskála, farangri komið fyrir og snætt áður en haldið var í göngu dagsins. Við gengum upp Flumbrugil og upp á Víðibrekkusker, veðrið var allskonar, rigning, sól, heitt og kalt en allir glaðir. Mikil litadýrð blasti við okkur þegar við gengum niður í Víðagil og sáum yfir í Suður- og Norður-Lambatungur.
Þann 1. september gengum við í Tröllakróka og þeir sem þorðu og vildu mynda sig á barmi þeirra gerðu það, þó að veður hafi verið heldur leiðinlegt þar, hvasst og slæddust með dropar, en hópurinn var ekki af baki dottinn og ákveðið var að halda áfram rakleiðis áleiðis að Víðidal, við horfðum niður í Víðidal og sáum hvar fólk bjó þrívegis á 19. öldinni. Haldið var síðan í skálann og grilluðu krakkarnir lambalæri. Um kvöldið lásum við sögur af ábúendum í Víðidal og höfðum það huggulegt.
Á þriðja degi var gengið upp á Illakamb þar sem við Laufey og Gulli voru komin að sækja okkur. Allir voru sammála um að þetta var frábær ferð og við nutum náttúrunnar í botn.
Ferðin var að vanda ekki eingöngu skemmtiferð, heldur felst í henni mikið nám um náttúru- og jarðfræði, búsetusögu, hvernig á að búa sig og margt fleira. Á meðan ferðinni stóð söfnuðu nemendur allskonar upplýsingum og myndefni af Lónsöræfum. Í kjölfarið unnu þau heimasíðu þar sem var fjallað um ferðina, svæðið, gróður, búsetusögu o.fl. Að lokum héldum við Kaffihúsakvöld fyrir foreldra þar sem nemendur kynntu ákveðna hluta verkefnisins fyrir þau.












