Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk fór fram í Hafnarkirkju þann 25. mars síðastliðinn. Til úrslita kepptu 8 nemendur frá Grunnskóla Hornafjarðar, 3 nemendur frá Djúpavogsskóla og 1 nemandi úr Grunnskólanum í Hofgarði. Stóra upplestrarkeppnin hefst formlega á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, sem einnig er dagur íslenskrar tungu, þann 16. nóvember ár hvert. Fram að lokakeppni leggja nemendur og kennarar sérstaka áherslu á vandaðan upplestur og framsögn. Nemendur lásu texta úr bókinni Fjársjóðsleit í Granada eftir Ólaf Pál Jónsson, ljóð um fugla eftir fjölda ljóðskálda og að lokum ljóð að eigin vali. Keppnin var jöfn og virkilega spennandi og sagði Halldór Tjörvi Einarsson, formaður dómnefndar, að þetta væri heilt yfir besti hópur sem hann hefði séð í keppninni.
Sigurvegarar keppninnar í ár eru;
1. sæti: Steinþór Hauksson, Grunnskóla
Hornafjarðar
2. sæti: Unnur Mist Stefánsdóttir, Grunnskóla Hornafjarðar
3. sæti: Katla Eldey Þorgrímsdóttir, Grunnskóla Hornafjarðar
Kynnir keppninnar var Guðbjörg Lilja Jóhannsdóttir, sigurvegari keppninnar í fyrra. Dómnefnd skipuðu Halldór Tjörvi Einarsson formaður dómnefndar, Sigríður Þórunn Þorvarðardóttir og Ágústa Margrét Arnardóttir. Um tónlist sáu nemendur í Tónlistarskóla Austur Skaftafellssýslu.
Fyrir marga er það áskorun að taka þátt í Stóru upplestrarkeppninni og lesa og túlka texta fyrir framan hóp af fólki, og því má segja að allir þátttakendur séu sigurvegarar á sinn hátt.


