Lestradagsskrá 4. bekkjar

28. apr. 2026

Í vikunni buðu krakkarnir í 4. bekk foreldrum, ömmun, öfum og 3. bekk að koma að hlýða á upplestur.  þetta er hluti af því sem er kallað Litla upplestrakeppnin og er smá æfing fyrir upplestrarkeppnina í 7. bekk.  Krakkarnir sungu líka tvö lög við undirleik Hrafnkels tónmenntakennara. Lögin sem þau fluttu voru Vorvindar glaðir og Snati og Óli.