Innritun nýnema
Innritun barna sem fædd eru árið 2019 og eiga að hefja skólagöngu haustið 2025 fer fram í Grunnskóla Hornafjarðar 12.- 26. maí 2025. Foreldrar eru beðnir um að skila tveimur innritunarblöðum útfylltum í skólann en þau eru inn á heimasíðu skólans https://gs.hornafjordur.is/skolinn/eydublod/. Æskilegt er að senda innritunarblöðin í tölvupósti á elsag@hornafjordur.is en það má líka koma með þau í Hafnarskóla
Verðandi nemendur í 1. bekk og foreldrar þeirra fá bréf í sumar með upplýsingum um skólastarfið en skóli verður settur 21. og 22. ágúst.
Skólastjóri Grunnskóla Hornafjarðar