Hnetulaus skóli
Í Grunnskóla Hornafjarðar
eru nemendur með bráðaofnæmi fyrir hnetum. Bráðaofnæmi eru skjót og
lífshættuleg ofnæmisviðbrögð þar sem ofnæmisvaldurinn er oftast fæða, lyf eða
skordýrabit.
Einstaklingur með bráðaofnæmi fyrir hnetum þarf ekki að borða hnetur til að fá
ofnæmisviðbrögð. Nóg er að hann komist í snertingu við matvæli sem innihalda
hnetur. Einnig getur snerting við einstakling sem hefur verið að meðhöndla
hnetur valdið svæsnum ofnæmisviðbrögðum.
Af þessum ástæðum hefur sú stefna verið tekin að Grunnskóli Hornafjarðar er
hnetulaus skóli. Í því felst að matur innan skólans innihaldi ekki hnetur að
neinni gerð, hvorki jarðhnetur eða trjáhnetur (möndlur, sesamfræ o.fl.).
Þetta þýðir að hvorki börn né starfsmenn skólans koma með hnetur eða fræ inn í
skólann. Við viljum biðja foreldra að gæta þess að börnin komi ekki með nesti
sem inniheldur hnetur. Dæmi um slíkt er: hnetujógúrt, abt mjólk með hnetumúsli,
brauð með hnetusmjöri, hnetur í poka, alls kyns orkustykki, flestar tegundir af
Corny, sumar brauðtegundir, morgunkorn og fleira.