Gullskórinn 2026 afhentur
Átakið Göngum í skólann er nú lokið og að venju var Gullskórinn afhentur þeim bekkjum sem voru duglegastir að nýta sér virkan ferðamáta á meðan á átakinu stóð. Síðastliðinn föstudag hittust allur skólinn í íþróttahúsinu og endað í miklu just dance gleði.
Keppnin var einstaklega hörð í ár og mikil spenna allt fram á síðasta dag! Það er greinilegt að nemendur Grunnskóla Hornafjarðar eru duglegir að ganga eða hjóla í skólann og gaman að sjá hversu margir tóku virkan þátt í átakinu.
Í ár voru það 4. bekkur í Hafnarskóla og 7. bekkur í Heppuskóla sem stóðu uppi sem sigurvegarar og hlutu hinn eftirsótta Gullskó.
Við óskum sigurvegurunum innilega til hamingju með frábæran árangur og þökkum öllum nemendum fyrir góða þátttöku.
Höldum áfram að velja virkan ferðamáta í skólann.

