Grænfánanum flaggað í annað sinn

24. maí 2017

Í morgun fékk Grunnskóli Hornafjarðar Grænfánann afhentan í annað sinn. Fáninn var afhentur fulltrúum í umhverfisteymi skólans af Hugrúnu Reynisdóttur, fulltrúa Landverndar. Afhendingin fór fram við fjölmenna athöfn í umhverfisgöngu skólans. 

Grænfáninn er umhverfisviðurkenning sem nýtur virðingar víða í Evrópu sem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Viðurkenninguna fá skólar eftir að hafa verið skóli á grænni grein og náð að auka umhverfismennt og styrkja menntun til sjálfbærni í skólanum. Skólar ganga í gegnum sjö skref í átt að aukinni umhverfisvitund og sjálfbærni. Þegar því marki er náð fá skólarnir að flagga Grænfánanum til tveggja ára og fæst sú viðurkenning endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðu starfi. 

 

Skrefin sjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarra starfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu í bekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddar raunhæfar aðgerðir í umhverfismálum og sjálfbærni innan skólans. Jafnframt sýnir reynslan að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri.