Göngum í skólann, gullskórinn
Í dag var tilkynnt um úrslit í "göngum í skólann" verkefninu. Veitt eru farandverðlaun fyrir 1. og 2. sætið. Að þessu sinni fór 5. bekkur með sigur af hólmi en skammt á eftir þeim voru krakkarnir í 6. bekk. Við óskum þeim til hamingju með árangurinn og hvetjum í leiðinni alla til að nota góða veðrið og ganga eða hjóla í skólann, sérstaklega eldri krakkana. Munum eftir endurskinsmerkjunum. Eftir verðlaunaafhendinguna dönsuðu nemendur og starfsfólk skólans í íþróttahúsinu.