Glæsilegur árangur í Svakalegu lestrarkeppninni!

Nemendur í grunnskólanum lentu í 7.sæti af 108

16. okt. 2026

Nemendur Grunnskóla Hornafjarðar tóku þátt í Svakalegu lestrarkeppninni í ár, en keppnin er lestrarátak fyrir nemendur í 1.–7. bekk á tímabilinu 15.sept.-6.okt. Alls tóku 108 skólar þátt í keppninni að þessu sinni. Markmið keppninnar er að efla lestraráhuga og auka lestraránægju barna. Við vonum að þátttakan hafi ekki aðeins hvatt nemendur til að lesa meira heldur einnig styrkt ánægju þeirra af lestri. Nemendur okkar stóðu sig svo sannarlega vel! Samkvæmt niðurstöðum keppninnar lásu nemendur Grunnskóla Hornafjarðar samtals 160.971 mínútu. Þegar lestrarmínútunum er deilt niður á 167 nemendur skilar það að meðaltali 964 mínútum á hvern nemanda, eða um 16 klukkustundum af lestri! Þetta er glæsilegur árangur og sýnir hversu miklu nemendur geta áorkað þegar þeir taka höndum saman. Við erum afar stolt af dugnaði þeirra og lestraráhuga. Kærar þakkir til allra nemenda sem tóku þátt – og innilega til hamingju með frábæran árangur! Vel gert, krakkar!