Foreldranámskeið - Uppeldi sem virkar

10. sep. 2024

Námskeiðið í Uppeldi sem virkar – færni til framtíðar verður haldið á Höfn 4. - 29. október næstkomandi. Námskeiðið stendur yfir í fjóra þriðjudaga, tvo tíma í senn, samtals 8 stundir.

Foreldrar læra aðferðir til að styrkja eigin hæfni, laða fram æskilega hegðun barnsins og fyrirbyggja erfiðleika á jákvæðan hátt. Best er að foreldrar mæti báðir á námskeiðið, sem er í boði sveitarfélagsins.

Foreldrar, sem setið hafa allt námskeiðið, geta sótt um niðurfellingu á einu mánaðargjaldi fyrir sín börn, gegn framvísun á staðfestingu á þátttöku.

Tími: Kennt verður þriðjudagana 8. okt.; 15. okt.; 22. okt. og 29. okt. frá kl. 19:30 - 21:30, 4 skipti alls.

Staður: Námskeiðið er haldið í Miðgarði, Víkurbraut 24, Höfn.

Mæta þarf í öll skiptin til að fá niðurfellingu á mánaðargjaldi.

Skráning fer fram á deild barns í leikskólanum; með tölvupósti: svavakristin@hornafjordur.is sigridurgisl@hornafjordur.is eða á heilsugæslunni í síma 432-2900 frá kl 11-12 virka daga.