Spíltali besta bekkjarins 4. bekkur

23. feb. 2026

Krakkarnir í 4. bekk buðu foreldrum og ömmum og öfum í heimsókn. Tilefnið var að nemendur voru búin að ljúka yfirferð á námsefni um líkamann og settu upp sérfræðingaspítala. Á spítalanum var hægt að læra ýmislegt um geðrækt, innri líffæri, hringrás blóðsins, vöðva og meltingarfærin.Auðvitað voru þar ritarar sem tóku á móti fólkinu og enginn fékk að fara inn fyrr en búið var að skrá alla og allir fengu armbönd (eins og er á öllum sjúkrahúsum)Ýmislegt var í boði fyrir gesti. Yoga, aflraunir, sýndar tilraunir, tekinn blóðþrýstingur, blint matarsmakk og margt fleira.Kosið var um nafn á spítalann og fékk hann nafnið SPÍTALI BESTA BEKKJARINS.