Árshátíð grunnskólans

31. okt. 2017

Á morgun, miðvikudaginn 1. nóvember er árshátíð Grunnskóla Hornafjarðar en hún er að venju haldin í íþróttahúsinu. Árshátíðin hefst klukkan 17:00 en miðasala kl 16:15. Að'gangseyrir er kr. 500 en aldrei meira en kr. 1500 á fjölskyldu.
Boðið er upp á veitingar fyrir og eftir sýningu.  Við bjóðum alla velkomna á sýninguna jafnt unga sem aldna og biðjum foreldra um að hafa börnin sín í sætum sér við hlið meðan á sýningu stendur.  Allir nemendur skólans taka þátt í árshátíðinni með einum eða öðrum hætti og er umgjörðin stór hluti af sýningunni  en nemendur hafa hafa unnið að henni  í smiðjum undanfarnar vikur sem og útbúið veitingar.