9. bekkur hristir upp í eðlisfræðinni
Lokaspretturinn í eðlisfræðinámi skólaársins hjá 9. bekk í náttúrufræði var einkar skemmtilegur. Bækurnar fengu að víkja og öll orka var lögð í að hanna og smíða blöðrubíla. Verkefnið snerist um samvinnu og að átta sig á hvernig best væri að beita þekkingu sinni og leikni í að hanna blöðrubíla. Krakkarnir voru áhugasamir og einbeittir í þessu verkefni. Þau hlustuðu á hugmyndir hvers annars, teiknuðu upp og byggðu hinar ýmsu útgáfur af blöðrubílum eins og sést á meðfylgjandi mynd. Keppnisdagur rann upp fimmtudaginn 5. mars og fengum við til okkar góða gesti meðal annars óskuðu nemendur eftir að fá bæjarstjórann sjálfan Sigurjón Andrésson sem dómara. Þau sjálf settu reglur og viðmið fyrir kappaksturinn, ásamt því að ákveða í hvaða flokkum yrðu veitt verðlaun en þau voru eftirfarandi:
● Hraðskreiðasti bíllinn (sem fer yfir 1,5 m línuna): Bjarni Veigar og Matthías með bílinn The Pringle mobile
● Lengsta vegalengdin (kyrrstaða: aftasta hjól): Einar Björn og Þór með bílinn Fjögralaufasmárinn
● Frumlegasta hönnunin: Adam Bjarni og Hildur Kara með bílinn The bullet
Verkefnið er liður í því að efla skilning nemenda á náttúrufræði með virkum hætti. Samvinna nemenda í blöðurbílaverkefninu sýndi glöggt hvernig ólík sjónarmið og sameiginleg lausnaleit dýpka skilning þeirra á viðfangsefninu og breyta hverri áskorun í dýrmætt tækifæri til náms.
Náttúrufræði kveðja
Laufey Sv.

