7. bekkur lærir um jökla
Næstu vikurnar munu 7. bekkingar læra um jökla í náttúrufræði. Í tilefni þess komu Súsanna og Erik, landverðir frá Vatnajökulsþjóðgarði, í heimsókn. Þau fræddu krakkana um Vatnajökul og sýndu þeim búnað sem notaður er á jöklum. Einnig fór fram sýniskennsla í sprungubjörgun. Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna.



