6. bekk og kennarar keppa

20. nóv. 2026

Sú hefð hefur skapast í skólanum að lið kennara keppir á móti 6. bekk í einhverri boltaíþrótt. þessi keppni fer fram bæði fyrir og eftir áramót. Að þessu sinni var keppt í fótbolta og höfðu kennarar betur. Þetta er mikið stuð og áhorfendur láta vel til sín taka í að hvetja sitt lið áfram.