Skólabragur
Skólabragur segir til um þann anda sem ríkir í skólanum. Hann myndast í samskiptum nemenda og starfsmanna þar sem allir einstaklingar eru mikilvægir og bera sína ábyrð. Lögð er áhersla á jákvæðan skólabrag en hann einkennist m.a. af;
- rétti einstaklingsins til að fá notið náms við hæfi
- skyldu hvers og eins til að virða rétt annarra
- frumkvæði - að hafa gaman
- að nýta tímann vel.
Starfsfólk skólans hefur sameinast um að legga hugmyndafræði Uppeldis til ábyrgðar til grundvallar í uppeldisstefnu skólans. Auk þess er skólinn þátttakandi í verkefni landlæknisembættisins Heilsueflandi grunnskólar og er í samstarfi við Landvernd um umhverfisvernd sem Grænfánaskóli .