Skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar

26. feb. 2019

Nú er lokið skólakeppni Stóru upplestrarkeppninnar. Þrettán nemendur komust áfram og munu þau taka þátt í Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem fer fram í Hafnarkirkju þann 11. mars. Eftirfarandi keppendur munu keppa fyrir hönd Grunnskóla Hornafjarðar: Elín Ása Hjálmarsdóttir, Guðmundur Reynir Friðriksson, Helga Kristey Ásgeirsdóttir, Oskar Karol Jarosz, Róbert Þór Ævarssson, Sessilía Sól Kristinsdóttir, Arna Lind Kristinsdóttir, Emir Mesetovic, Friðrik Björn Friðriksson, Isabella Tigist Felekesdóttir, Magndís Lóa Aðalsteinsdóttir, Nína Ingibjörg Einarsdóttir og Reynir Snær Gunnarsson. Óskum við þeim til hamingju með árangurinn og góðs gengis í lokakeppninni. Dómarar voru Stefán Sturla Sigurjónsson, Hlíf Gylfadóttir og Þórður Sævar Jónsson og þökkum við þeim fyrir aðstoðina.