Skólinn í tölum

Nemendur í 1. - 4. bekk eru með 30 kennslustundir í skólanum á viku miðað við 40 mínútna kennslustund.

Nemendur í 5.- 7. bekk eru með 35 kennslustundir í skólanum á viku miðað við 40 mínútna kennslustund.

Nemendur í 8. - 10. bekk eru með 37 kennslustundir í skólanum á viku miðað við 40 mínútna kennslustund.

Í 5. - 6. bekk eru tvær kennslustundir á dag 60 mínútur og því færri kennslustundir í stundatöflunni þeirra.

Í 7. - 10. bekk er ein kennslustund á dag 60 mínútur.

Fjöldi nemenda skólaárið 2023 er 248

Í Hafnarskóla er 1. - 6. bekkur og þar eru 156 nemendur.

Í Heppuskóla er 7. - 10. bekkur og þar eru um 92 nemendur.

Sjá má fjölda í einstökum bekkjum undir nemendur.

Fjöldi starfsmanna 15. ágúst 2023 er 63, Auk þeirra starfa við skólann umsjónarmaður fasteigna og skólahjúkrunarfræðingur.

2020-10-23-12.40.09