Lykiltölur í lífi barna í sveitarfélaginu

13. maí 2020

9. bekkur kl. 17:00 þriðjudaginn 19. maí í stofu 5 í Heppuskóla.

7. bekkur kl. 19:30 þriðjudaginn 19. maí í stofu 5 í Heppuskóla.

8. bekkur kl. 17:00 mánudaginn 25. maí í stofu 5 í Heppuskóla.

10. bekkur kl. 19:30 mánudaginn 25. maí í stofu 5 í Heppuskóla.

Fundarefni á öllum fundunum verða niðurstöður könnunarinnar Ungt fólk sem lögð var fyrir nemendur í 8. – 10. bekk í febrúar. Um leið er þetta framhaldsfundur frá því í janúar. Vegna samkomubanns og þrengsla hjá okkur verður fundað með foreldrum hvers árgangs fyrir sig en búið verður að fjalla um niðurstöður könnunarinnar með nemendum fyrir fundinn.  

Niðurstöður könnunarinnar eru um margt áhugaverðar eins og má sjá hér. Fyrst og fremst er þetta könnun sem segir okkur til um stöðuna eins og hún er núna en gefur okkur um leið tækifæri til þess að breyta þeim þáttum sem okkur finnst ekki ásættanlegir.

Töluverður munur er á milli árganga og verður farið yfir þenna mun en fyrst og fremst er fundartíminn hugsaður fyrir foreldra til að stilla saman strengi sína fyrir sumarið. Líklegt er að unglingar muni fá minni vinnu en oft áður og við það eykst tíminn sem nemendur hafa til að „hangsa“ og þá getur ýmislegt gerst.

Gestur fundarins verður Erla Björg Sigurðardóttir félagsmálastjóri.

Sérstök áhersla er lögð á að allir foreldrar mæti.