Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

17. mar. 2022

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk fór fram í Hafnarkirkju 16. mars og kepptu þar 9 nemendur frá Grunnskóla Hornafjarðar og 6 nemendur frá Djúpavogsskóla. Nemendur lásu texta úr bókinni Strokubörn eftir Sigrúnu Eldjárn, ljóð eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson og ljóð að eign vali. Keppnin var hörkuspennandi að vanda og áttu dómarar erfitt með að velja sigurvegara. Fyrstu þrjú sætin fóru til;

1. sæti, Rökkvi Pálmason Djúpavogsskóla.

2. sæti, Anna Margrét Alfreðsdóttir Djúpavogsskóla

3. sæti, Áskell Ingólfsson Grunnskóla Hornafjarðar

Kynnir keppninnar var Fabian Szczepanek sem var sigurvegari keppninnar í fyrra. Dómnefnd skipuðu þau Sæmundur Helgason formaður dómnefndar, Herdís Waage, Hlíf Gylfadóttir, Margrét Jóhannesdóttir og Þorbjörg Sandholt. Um tónlist sáu nemendur úr Tónskóla Austur – Skaftafellssýslu.

Það er mikil lifsreynsla fyrir börnin að taka þátt í Lokahátíðinni og lesa upp og túlka texta fyrir framan hóp af fólki og segja má að allir þátttakendur séu sigurvegarar á sinn hátt.