Hnetulaus skóli

29. mar. 2022

Í flestum skólum er einhver með bráðaofnæmi, ýmist börn eða starfsfólk. Bráðaofnæmi eru skjót og lífshættuleg ofnæmisviðbrögð þar sem ofnæmisvaldurinn er oftast fæða, lyf eða skordýrabit.

Í Grunnskóla Hornafjarðar eru nemendur greindir með bráðaofnæmi fyrir hnetum.

Einstaklingur með bráðaofnæmi fyrir hnetum þarf ekki að borða hnetur til að fá ofnæmisviðbrögð. Nóg er að hann komist í snertingu við matvæli sem innihalda hnetur. Einnig getur snerting við einstakling sem hefur verið að meðhöndla hnetur valdið svæsnum ofnæmisviðbrögðum.

Af þessum ástæðum hefur sú stefna verið tekin að Grunnskóli Hornafjarðar verði hnetulaus skóli frá og með 21.03.2022. Í því felst að matur innan skólans innihaldi ekki hnetur að neinni gerð, hvorki jarðhnetur eða trjáhnetur (pekanhnetur, kasjúhnetur, möndlur o.fl.).

Þetta þýðir að hvorki börn né starfsmenn skólans koma með hnetur inn í skólann. Við viljum biðja foreldra að gæta þess að börnin komi ekki með nesti sem inniheldur hnetur. Dæmi um slíkt er: hnetujógúrt, abt mjólk með hnetumúsli, brauð með hnetusmjöri, hnetur í poka, alls kyns orkustykki, flestar tegundir af Corny, sumar brauðtegundir, morgunkorn og fleira.