Hafnarhittingur í desember

6. des. 2017

í gær þriðjudag var fyrsti Hafnarhittingurinn haldinn í Heppuskóla. Hafnarhittingur hefur það að markmiði að styrkja félagsleg tengsl í bænum okkar, bjóða nýtt fólk velkomið og ýta undir að þeir sem lengi hafa búið hér geti kynnst nýju fólki.  Hafnarhittingur er fyrir alla, unga sem aldna. Í gær voru skráðir í gestabók 259 manns og 134 keyptu sér mat sem var í boði.Það er óhætt að segja að það var líf og fjör í Heppuskóla, þangað kom fólk og tók þátt í allskonar hlutum en boðið var upp á  föndur, spil, pokasaum, legóbraut, blak, zumba, jóga, prjón og hekl svo eitthvað sé nefnt. Stefnt er að því að endurtaka leikinn á nýju ári og allar hugmyndir um hvað bjóða skal upp á vel þegnar og auðvita ef einhverjir vilja leggja okkur lið þá er það einnig vel þegið. Öll vinna við Hafnarhittinginn er sjálfboðavinna.