• IMG_6936
  • IMG_6937
  • IMG_6932
  • IMG_6898
  • IMG_6916
  • IMG_6930
  • IMG_6926
  • IMG_6911
  • IMG_6917

Betri bær - skrúðganga á morgun

Umhverfisdagar í fullum gangi í skólanum sem enda á skrúðgöngu og sýningu á morgun.

23. maí 2017

Þessa dagana eru umhverfisdagar í fullum gangi í skólanum. Unnið er þvert á bekki og taka allir nemendur þátt fyrir utan 10. bekkinga sem vinna hörðum höndum að lokaverkefninu sínu. Umhverfisdagarnir enda á skrúðgöngu á morgun miðvikudag og hefst hún um 10:00 við Heppuskóla. Vonandi tileinkum við umhverfinu samt alla daga hér eftir.

Eins og yfirskriftin ber með sér er áhersla umhverfisdaganna að bæta bæinn okkar og er útgangspunkturinn „Hvað getum við gert til að bæta bæinn?“ Verkefnin sem unnið er að eru afar fjölbreytt eins og sjá má á myndunum en allir bæjarbúar eru hvattir til að taka þátt í skrúðgöngunni og koma og sjá hvað nemendur hafa verið að vinna að. Gengið verður frá Heppuskóla eftir Víkurbraut að Hafnarbraut. Þaðan upp að Hafnarskóla þar sem skólinn fær Grænfánann afhentan í þriðja sinn en það er sérstaklega viðeigandi á umhverfisdögum. Að lokum liggur leiðin niður að miðsvæði þar sem götuleikhúsið sýnir listir sínar, fatamarkaður opnar í Heppuskóla, hóparnir sýna hvað þeir hafa verið að gera og ýmislegt fleira.

Í skrúðgöngunni verða ýmsar uppákomur en nemendur hafa m.a. búið til hljóðfæri, æft dans, búið til ruslaskrímsli og gert ýmislegt fleira allt úr afgöngum.

Sjáumst í skrúðgöngu og á sýningu á morgun