Skíðaferð í Oddsskarð

8. mar. 2019

Nemendur í 8. bekk skelltu sér í Oddsskarð í vikunni. Farið var á þriðjudagsmorgni og komið heim seinnipart miðvikudags. Ferðin gekk í alla staði mjög vel, blíðu veður og nutu krakkarnir útiverunnar í þessari skíðaparadís. Gist var eina nótt á Neskaupstað og auðvitað var sundlaugin heimsótt til að skola af sér eftir góðan dag. Á miðvikudagsmorguninn var Verkmenntaskóli Austurlands heimsóttur og nemendum kynnt starfsemi hans. Allir komu svo sælir og þreyttir heim úr skemmtilegri ferð. Fararstjórar í ferðinni voru Sæmundur Helgason, Valgerður Inga Reykjalín Guðmundsdóttir og Guðrún Ingólfsdóttir