Dagur gegn einelti

8. nóv. 2017

Í dag fjölmenntu nemendur og starfsfólk grunnskólans út á Sindravelli og mynduðu hjartakeðju í tilefni dagsins, en dagurinn er helgaður baráttunni gegn einelti. Þær Dagmar og Angela, nemendur í 9. bekk sungu við undirleik Þórgunnar skólastjóra í miðju hjartans og auðvitað tók allur hópurinn undir í söngnum. Með hjartanu var á táknrænan hátt verið að leggja áherslu á að við viljum ekki einelti í skólanum. Enginn vill verða fyrir einelti og enginn vill leggja í einelti. Ef okkur verður það á að leggja í einelti eða vera með særandi  framkomu gagnvart öðrum þá er mikilvægt að að hlusta á ábendingar og bæta sig. Það er í lagi að gera mistök en það er nauðsynlegt að viðurkenna þau og vera reiðubúinn að læra af þeim.  Þannig verðum við betri manneskjur og þannig líður okkur vel innan um hvort annað og með hvort öðru. Tónlist hefur þann eiginleika að hún lætur flestum líða vel þegar því var við hæfi að syngja saman, hafa gaman saman og æfa okkur í að líða vel með hvort öðru.